Skip to content

Aðalfundur BGFÍ 24.mars 2026

Aðalfundur Blóðgjafafélags Íslands var haldinn þann 24.mars s.l. í Hringsal Barnaspítala Hringsins.

Dagskrá fundarins var eftirfarandi :

  1. Kosning fundarstjóra
  2.  Skýrsla stjórnar lögð fram
  3.  Ársreikningur lagður fram til samþykktar
  4.  Lagabreytingar
  5.  Kosning stjórnar
  6.  Kosning skoðunarmanna
  7.  Ákvörðun félagsgjalds
  8.  Önnur mál

Fundarstjóri var kosinn Ólafur Helgi Kjartansson sem tók við fundarstjórn.

Davíð Stefán Guðmundsson, formaður Blóðgjafélagsins fór yfir verkefni ársins. Var þar meðal annars farið yfir samstarf með Noona, aukið samstarf við Landspítalann og Blóðbankann um gerð kynningarefnis. Einnig fór formaður yfir frekara samstarf með nýjum aðilum á borð við World Class og markaðsstofuna Sahara. Formaður árétti einnig að enn eru ekki að nást markmið um  lágmarks endurnýjun í fjölda blóðgjafa, en árlega þarf um 2.000 nýja einstaklinga í hóp blóðgjafa. Formaður fór yfir möguleg áhrif á íslenskt samfélag ef þessi markmið nást ekki, en mikilvægar meðferðir til fullorðinna og nýbura eru í uppnámi ef skortur á blóði skapast á Íslandi.

Hákon Jónsson, gjaldkeri félagsins fór yfir fjárhagsstöðuna. Góð umræða skapaðist og var ársreikningur félagsins samþykktur.

Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinum.

Næst var komið að kosningu stjórnar, en þar sem 7 einstaklingar voru í framboði þá var sjálfkosið í stjórn. Stjórn Blóðgjafafélagsins 2026-2027 skipa eftirfarandi einstaklingar :

  • Davíð Stefán Guðmundsson
  • Sigríður Ósk Lárusdóttir
  • Hákon Jónsson
  • Ólafur Helgi Kjartansson
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir
  • Hólmar Svansson
  • Stefán Rafn Stefánsson

Skoðunarmenn félagsins voru kosnir þeir Pétur Þorsteinsson og Jón Sigurðsson.

Fundurinn ákvað að halda óbreyttri stefnu varðandi félagsgjöld, þ.e að enginn gjöld skyldu innheimt af skráningu í félagið.

Næst var farið yfir lista þeirra heiðursblóðgjafa sem gefið hafa oftar en 150 gjafir. Fyrirhuguð er heimsókn til forseta á Bessastaði þar sem forseti býður í móttöku og heiðrar blóðgjafa.

Engin önnur mál lágu fyrir fundinum og sleit fundarstjóri fundi 19:30.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *