Skip to content

Það tekur 30 mínútur að bjarga mannslífi – Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er í dag

Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert. Dagurinn er haldinn til heiðurs blóðgjöfum um heim allan sem gefa af óeigingirni blóð og blóðhluta sem síðan er gefið til sjúkra. Mikil þörf er á að fjölga blóðgjöfum, því er tilvalið að nýta þennan hátíðisdag til að ganga í hóp vaskrar sveitar blóðgjafa sem tryggja samfélaginu dýrmætt framboð af blóði og blóðhlutum. Án framlags okkar góðu blóðgjafa yrði erfitt, jafnvel ómögulegt að framkvæma skurðaðgerðir og aðstoða einstaklinga í gegnum erfið veikindi.

Sumartíminn reynist starfsemi Blóðbankans gjarnan erfið þar sem ferðalög eru tíðari og blóðgjafar síður heima við en annars. Það er því starfseminni dýrmætt þegar blóðgjafar muna eftir að gefa blóð áður en haldið er í fríið því Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag allan ársins hring. Þessu til viðbótar má nefna að á Íslandi eru virkir blóðgjafar um 2.000 færri en þeir þurfa að vera. Þessu til viðbótar eru um 2.000 gjafar á hverju ári sem hætta að gefa sökum aldurs eða annara orsaka. Heildar þörf Blóðbankans á nýliðun í blóðgjafahópnum er því um 4.000 blóðgjafar á ári.

Ég vil sérstaklega hvetja konur til að gerast blóðgjafar, en Ísland er sér á báti þegar kemur að lágum fjölda kvenna í hópi blóðgjafa. Af heildar magni heilblóðs á Íslandi á um 27% uppruna sinn hjá konum, á meðan 44% af heilblóði á uppruna sinn hjá konum í Svíþjóð. Heildar fjöldi blóðgjafa í dag er um 6.000, en aðeins 2.000 úr þessum hópi eru konur. Blóðgjafafélag Íslands vill beita sér fyrir því að fjölga konum í hópi blóðgjafa helst á þann stað að konur séu með helmingsstöðu í hópi blóðgjafa.

Sökum ástandsins í samfélaginu og framkvæmda við Snorrabraut verður ekki slegið upp garðveislu að Snorrabraut í tilefni dagsins, en blóðgjafar og sér í lagi þau sem hafa áhuga á að gerast blóðgjafar eru hvattir til að mæta í Blóðbankann að Snorrabraut 60 eða á 2.hæðina að Glerártorgi Akureyri og láta gott af sér leiða. Boðið er uppá sérstaklega góðar veitingar í tilefni dagsins. Best er að panta tíma í blóðgjöf með því hringja í síma 543 5500 (Reykjavík) eða 543 5560 (Akureyri). Einnig er hægt að bóka tíma á www.blodbankinn.is.

Dagurinn 14. júní var valinn en það er afmælisdagur nóbelverðlaunahafans Karl Landsteiner en hann uppgötvaði ABO-blóðflokkakerfið árið 1900. Að alþjóðlega blóðgjafadeginum standa WHO, Alþjóða Rauði krossinn, Alþjóðasamtök blóðgjafafélaga og Alþjóðasamtök blóðgjafar. Að baki þessara samtaka eru 192 aðildarríki Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, 181 landssamtök Rauða krossins, 50 landssamtök blóðgjafafélaga og þúsundir sérfræðinga um blóðgjafir.

Áhugasamir um blóðgjafir og starfsemi BGFÍ geta gerst meðlimir félagsins á heimasíðu félagsins, www.bgfi.is.

Fyrir hönd Blóðgjafafélags Íslands
Davíð Stefán Guðmundsson
Formaður

Leave a Reply

Your email address will not be published.