Skip to content

Vilt þú bjarga mannslífi ? Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er 14.júní

Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert. Dagurinn er haldinn til heiðurs blóðgjöfum um heim allan sem gefa af óeigingirni blóð og blóðhluta sem síðan er gefið til sjúkra. Mikil þörf er á að fjölga blóðgjöfum, því er tilvalið að nýta þennan hátíðisdag til að ganga í hóp vaskrar sveitar blóðgjafa sem tryggja samfélaginu dýrmætt framboð af blóði og blóðhlutum. Án framlags okkar góðu blóðgjafa yrði erfitt að framkvæma skurðaðgerðir og aðstoða einstaklinga í gegnum erfið veikindi.

Sumartíminn reynist starfsemi Blóðbankans gjarnan erfið þar sem ferðalög eru tíðari og blóðgjafar síður heima við en annars. Það er því starfseminni dýrmætt þegar blóðgjafar muna eftir að gefa blóð áður en haldið er í fríið því Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag allan ársins hring.

Sökum ástandins í samfélaginu verður ekki slegið upp garðveislu að Snorrabraut, en blóðgjafar og sér í lagi þau sem hafa áhuga á að gerast blóðgjafar eru hvattir til að mæta í Blóðbankann að Snorrabraut 60 eða á 2.hæðina að Glerártorgi Akureyri og láta gott af sér leiða. Best er að panta tíma í blóðgjöf með því að smella hér, hringja í síma 543 5500 (Reykjavík) eða 543 5560 (Akureyri).

Dagurinn 14. júní var valinn en það er afmælisdagur nóbelverðlaunahafans Karl Landsteiner en hann uppgötvaði ABO-blóðflokkakerfið árið 1900. Að alþjóðlega blóðgjafadeginum standa WHO, Alþjóða Rauði krossinn, Alþjóðasamtök blóðgjafafélaga og Alþjóðasamtök blóðgjafar. Að baki þessara samtaka eru 192 aðildarríki Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, 181 landssamtök Rauða krossins, 50 landssamtök blóðgjafafélaga og þúsundir sérfræðinga um blóðgjafir.

Áhugasamir um blóðgjafir og starfsemi BGFÍ geta gerst meðlimir félagsins á heimasíðu félagsins, www.bgfi.is eða smella hér.

Leave a Reply

Your email address will not be published.