Skip to content

VÍS veitir styrk úr samfélagssjóði til BGFÍ

Blóðgjafafélag Íslands hlaut fyrir skömmu veglegan styrk úr samfélagssjóði VÍS sem nýtist í gjafir handa virkum blóðgjöfum sem mæta í sína 5. blóðgjöf í Blóðbankann.

Í vikunni mætti galvaskur blóðgjafi sem gaf í fimmta sinn og hlaut þennan fína bolla sem stendur á „Ég gef blóð – Ég bjarga lífi“.

Meðfylgjandi mynd var tekin í Blóðbankanum og birt með heimild blóðgjafans. 

Félagið færir VÍS sínar bestu þakkir fyrir styrkinn!

Leave a Reply

Your email address will not be published.